Jamm og jú
Hellú, þá hef ég ákveðið að koma með nýtt blogg.. hef ekki alveg nennt að blogga fyrren núna.. Maður er bara að vinna alla daga og síðan nennir maður engu á kvöldin.. Leikskólinn lokar samt á föstudaginn í næstu viku, semsagt 23 júni.. Þá fer maður bara að hugsa um Spánarferðina, gera allt sem þarf að gera fyrir hana.. Og passa sig á því að eyða ekki miklum peningum því maður ætlar að reyna að versla slatta þarna uti.. Vona bara að pabbi nenni að fara með mér í búðir, reyndar þá veit ég að hann nennir þvi :)
Í dag eru já bara 18 dagar í að ég fari og ég get ekki beðið !! Sjá litla krúttið mitt hann Nicolas, en því miður fer Michael þennan dag hingað til Íslands þannig ég verð að hitta hann þegar ég kem frá Spáni :)
Alveg er það yndislegt að vinna á leikskóla.. Það elska mann allir þarna :D Ein lítil sem er að verða 2 ára grenjar á eftir mér þegar ég fer í kaffi og ef ég skil hana eftir einhversstaðar :D Alveg hreint ótrúlega krúttlegt :)
En í dag er víst 17 júni og hvað á maður að gera ??
Held annars að ég hafi þetta ekki mikið lengra.. Heyrumst :*
hehe