Auglýsing

Gvuð langt síðan maður bloggaði :P

06. júlí 2006 klukkan 19:16
Jæja, nú er orðið svakalega langt síðan maður bloggaði síðast og margt sem hefur verið að gerast í lífi manns..

ég og steini erum komin með íbúð og búum nú í kósý íbúð í vesturbæ kópavogs :) ekkert smá kósý íbúð og geðveikt gaman að búa ein og sjá um sig sjálfur.. :) ég er alveg úper góð húsmóðir :
svo núna um helgina er ég að fara á ættarmót á Lóni fyrir austan, ættin hans gulla pabba ...vonandi verður það gaman, förum vonandi í fyrramálið =)
já alltaf þegar maður sest niður og ætlar sér að skrifa það sem hefur verið að gerast þá man maður ekki neitt.. við erum ekki með netið heima en það á að koma bara núna í næstu viku..jeijj, búið að vera ömurlegt að vera ekki með netið heima... eða heimasíma..:)
þegar við fluttum inn þá áttum við ekki neitt til að byrja að búa með en þetta kemur ógeðslega fljótt, fengum svoo margt gefins.. að það eina sem okkur vantar núna er fataskápur, eigum risa hornsófa, og risa 32 tommu widescreen sjónvarp, og ískáp og þvottavél, og svo fylgir uppþvottarvél með íbúðinni, sem að við þúst eigum meðan við búum þarna :) þetta er geðveikt fjör að geta búið heima hjá sér, og þarf að elda á kvöldinn og svona :) það eina sem vantar til að fullkomna allt núna er bílprófið í cerios pakka >:) nei nei, fer í ökuskóla 2 á mánudag kl 5...
Í fyrradag dó Dóri afi minn, sem er pabbi pabba míns, það er alveg ömurlegt..hann var samt orðinn svo veikur að þetta var betra fyrir hann eflaust, því hann þjáðist svo, hann var veikur með krabbamein og fékk síðan lungnabólgu í bæði lungun :( maður fékk þó allavega að kveðja hann og segja honum og láta hann vita að manni þótti vænt um hann :/ jarðaförin verður svo á miðvikudaginn og kistulagning á mánudaginn, það verður örugglega hryllilega erfitt.. ég þarf að halda á skreytingu í jarðaförinni, þetta verður erfitt..
ég ætla bara að kveðja í bili... skrifa vonandi fljótt aftur og vonandi skrifar elín frá spáni ? sem ég reyndar efast um að hún geri, kannski ekkert net, hun er semsagt farin i 2 vikur til spánar..
en ég er hætt :)
smile ;)
Agnes
Agnes og Elín
Ingunn ;* skrifar ...
æj samhryggist! :(

en til hamingju með íbúðina samt :)
hvar í vesturbænum er hún?
07. júlí 2006 klukkan 19:23
Agnes skrifar ...
 
takk, en hun er rett hja sundlauginni, aðeins fyrir neðan :)
16. júlí 2006 klukkan 00:22

Skrifa athugasemd

Lag dagsins er ?!

Lag vikunnar er everytime we touch með Cascada ! :)

Könnun

Hvaða staup finnst þér best??